Ævintýri Úlfs

fimmtudagur, maí 08, 2008

Puerto Banus og páskarest

Hérna koma fleiri myndir frá Lúxemborg og svo ferðinni okkar til Puerto Banus á Spáni. Það var yndislegt að komast aðeins úr kuldanum og í smá hita á Spáni. Úlfur var algjört yndi á öllum þessu ferðalögum okkar og heyrðum við varla í honum :) Við gistum í yndislegu 3 hæða húsi og vorum við á efstu hæð með hurð beint út á riiisa svalir með legubekkjum og næsheitum, þannig þegar Úlfur vaknaði var farið beint á rimlana og heimtað að fara út á bleiunni :) Við vorum rosalega heppinn með veður og höfðum það kósí heima í húsi og niðrá strönd með krökkunum meðan Biggi og Beta voru á golfvellinum í þá daga sem Biggi var að keppa. Það ískraði í Úlfi að gleði þessa daga og var hann í úber mega stuði á ströndinni að týna steina og busla í vatninu... svo mikið að gera hjá honum að hann hafði varla tíma fyrir íspásu :) Sætu frændsystkynin áttu heima í litlu sundlaugunum, höfðu það kósí í sólinni að busla í vatninu. Ekki veit ég hvað þau borðuðu marga ísa en jeminn það var spurt um nýjan ís á 5 min fresti og þetta var líka það fyrsta sem úlfurinn spurði um þegar hann opnaði augun - bara svona til að tékka ha ha ha :)

Það eru enn fleiri myndir á leiðinni - erfitt að upploada svona mikið í einu...

Öll 3 að rífa upp páskaeggin

Birgitta að velta fyrir sér nýjum felustöðum

Litla sæta með stóra páskaeggið sitt

Ingi sáttur með sitt :)

Úlfur að spá í að kyssa páskaungann - en þorði ekki :)

Birgitta að gretta sig og geifla

Krútta að pósa

Húsið okkar

Húsið okkar

Útsýnið frá svölunum

Úúúú hvað er nú þetta?

Bjakk, slímugur snigill

Allir á leið í bæinn

Töffarinn kominn á kreik

Ingi og Úlfur búnir að klifra upp rennibrautina

Sæta á leið í rennibrautina

Víííí gaman að renna með Birgittu

Meira meira meira!

Rosa sport þessir stigar

Goggunarröð í leiklandi :)

Mættur á BurgerKing og spennan er að fara með litla kút

Litli sullarinn rosa spenntur - aðeins að tékka á hitastiginu

Einn að ofmetnast og bleyta allar buxurnar he he

Sæt saman í sólinni :)

Moka mini kastala

Spennan alveg að fara með litla kút :)

Hí hí kalt

Drullumall með meiru

Litli úlfurinn í essinu sínu

Stebbi með einn kaldann

Ooooog ekki má gleyma að knúsa frænda sinn solið líka

Einn lítill að stelast í morgunkornið

Úff Ingi með slíííímið góða

Litlu krúttin samankominn - öll eins :)

Beta og Stefanía sætar saman

Halldór, Stebbi og Biggi á lokadegi mótsins

Skoraði feitt á móti Stebba

Ingi Rúnar alveg í essinu sínu

MAAAAARK

Óje Ingi malaði pabba sinn í þythokkí - góður leikur!

Hr. Steinn mættur á svæðið

Gjösssvovel...

Á leið á ströndina síðasta daginn

Aðeins að kyssa múttu sína

Nebbakoss :)

Úlfur búinn að finna sér listaverk við sitt hæfi
Ætlaði að fá alla takk...

Verkamennirnir að sækja vatn

Setið á ströndinni með pabba

Sætu feðgarnir saman

Fundum þessa flottu hunda síðasta daginn okkar

Feðgarnir að bíða eftir matnum

Ingi alltaf jafn mikill töffari :)

Feðgarnir flottir á því...

Kína-veislan mikla síðasta kvöldið




Litla prinsessan að pósa með nýju eyrnalokkana

Ingi prakkari að stríða múttu sinni

Ahhh aðeins að knúsa Inga sinn

Sætustu frændurnir síðasta kvöldið á Spáni

Krúttið að fylgjast með skýjunum á leiðinni heim

Ma og Úlfur í London að bíða og bíða

Litli töfarinn með BOSE headphone og iTouch-inn

1 Comments:

  • At 13:30, Anonymous Nafnlaus said…

    Förum við ekki að fá fleiri myndir af litla grallaranum???


    Knús
    Erna

     

Skrifa ummæli

<< Home