Ævintýri Úlfs

mánudagur, febrúar 04, 2008

Janúar

Nú er famelían búinn að bralla ýmislegt í janúar þrátt fyrir mikinn snjó og bilað veður inn á milli. Við erum búinn að fara í nokkrar snjósleðaferðir um hverfið og er Úlfur alltaf jafn kátur að komast út að leika :) Feðgarnir bjuggu til snjókalla saman, pabbasnjókall og úlfasnjókall - hrikalega stoltir og þurfti Úlfur ýtrekað að sína mér þá út um gluggann. Annars er það að frétta að við höngum heima núna því litli yrðlingurinn er kominn með sína fyrstu ælupest. Hann er s.s. búinn að taka Exorcist á okkur alltof oft um helgina og því búinn að æla á öll náttfötin sín, rúmfötin og miklu meira en það. Hann er samt voðakátur og hrikalega hress eftir hverja gusu „Úlllu æla... bjakk“ enda fær hann þá að striplast ha ha. Hann er allur að koma til og eftir píanókennslu hjá Langafa ákvað hann sjálfur að tími væri kominn til að leggja sig. “Mamma dudda“ og svo dró hann mig inní herbergi :) (1sta skiptið sem hann stingur uppá þessu).
Nýjasta nýtt er frasinn „Kað e i gagi“ (Hvað er í gangi?) og hefur það verið notað óspart við öll tækifæri en hann búinn að vera voðalega duglegur að setja saman 2 og 3 orð núna í janúar - allt að koma :)

Gengið út Ásvallagötuna kl 17:00 og farið að dimma

Feðgarnir að leggja af stað í leiðangur

Fékk að taka jógúrt í nesti... mmm

Mættir uppá tún

Pabbi að hlaupa með litla kútinn

Mæðginin á kafi í snjó

Var ekki alveg viss með rennibrautina í fyrstu...

... en jú þvílíkt fjör, meira meira!

Gegnsægju mæðgini að róla sér

Ekki má gleyma að borða smá snjó

Bessssst í heimi

Þetta er bakgarðurinn minn... svoooooona stór

Litli undirhökumann alveg á kafi í snjógallanum

Stoltir feðgar af fyrsta snjókallinum

Brún/græneygði eplaprinsinn

Litli ælupésinn kominn í bað og geggjað stuð að sprauta á pabba!!!

Aðeins að bleyta pabba meira ha ha...

Vaaaaá spraut spraut

Ha ha ha þetta er svooo gaman :)

og ekki má gleyma að sprauta á mömmu líka

Ahhh orðinn hreinn og fínn, reyndar ældi
hann sig aftur út eftir 30 min en það reddaðist :)

5 Comments:

  • At 00:01, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hó sætarti rass mikið var nú gaman að fara til löngu og langa í nesið ;)
    Takk fyrir þá ferð...!!
    frábærar myndir af Úlfinum var líka ekkert smá gaman að koma á mánudagskvöldið Úlfur var svo góður við Elmar Franz frænda sinn eða (Emma)eins og Úlfur kallar hann;)hhee

    Hilsen á kjallaragengið.........!

     
  • At 00:03, Anonymous Nafnlaus said…

    Og já ég heiti Elmar Franz en ekki Hönnu Cörlu kríli :)

     
  • At 22:35, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ sæta rassgat:)
    Bara að kasta á þig kveðju
    Þú ert orðinn svo stór og flottur
    Langt síðan að við sáum þig og mö og pa síðast
    Bætum vonandi úr því fljótlega!!
    Kossar og knús úr Eyjum
    Anna Rós og co

     
  • At 18:41, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ snúllilíus!

    Er ekki alveg að koma tími á mamma fari að setja inn febrúarmyndir af þér, svona fyrir okkur sem fáum ekki að knúsa þig þessa dagana...

    Knús Erna Sif

     
  • At 20:36, Anonymous Nafnlaus said…

    Skemmtilegar snjómyndir. Þú ert nú meiri fjörboltinn :)

     

Skrifa ummæli

<< Home