Lúxemborgískir páskar
Fyrirgefið, fyrirgefið, fyrirgefið!
Úff það er aldeilis að ég er búinn að vera léleg við að setja inn nýjar myndir undanfarið en nú kemur ROSA myndashow. Famelían er nú aldeilis búinn að gera ýmislegt af sér... við skelltum okkur til LÚX í heimsókn til Bigga, Betu og krúttanna. Við vorum hjá þeim í 3 daga yfir páskana og það var yndislegt að slappa bara af í RISA húsinu þeirra, borða góðan mat og hafa það kósí með krökkunum. Við gerðum ýmislegt m.a. keyrðum við til Belgíu þar sem Halldór komst í litla sérverslun bara með bjór og breyttist í 3 ára krakka í nammibúð, kom út með fulla kassa af "blandi í poka". Við urðum að skilja eitthvað af honum eftir í góðri umsjá Bigga en Halldór tók 3 stóra mjög merkilega bjóra með sér í annsi langt ferðalag. Þetta á víst að vera sama uppskrift og "besti" bjór í heimi nema það er notað annað vatn. Nenntum ekki að keyra í marga klst að og bíða svo í biðröð í 8 klst til að fá ahnn afgreiddann út um litla lúgu á klaustri :) en þessi er samt hrikalega góður þrátt fyrir að vera 10.5%.
Við fórum með krakkana í boltaland í Belgíu og þvílíkt og annað eins fjör... jeminn! Úlfur vissi ekki hvað hann átti að gera við sjálfan sig í 400 fermetra leiklandi. Allt var bólstrað og svampar, boltar og klifurgrindur og veggir út um allt þannig enginn gat meitt sig. Nú var bara að klifra smá og renna sér ofaní haug af boltum. Krakkarnir skemmtu sér konunglega á meðan fullorðna fólkið hló og drakk kaffi í rólegheitum... reyndar urðum við nú líka að prufa smá líka ha ha ha. Ég og Beta skelltum okkur í stærsta klifurkastalann með börnin og eftir að hafa klifrað upp þónokkra metra tók við risa rennibraut og það er óhætt að segja að við "flugum" niður. Aðeins þyngri en 5 ára barn ;) og því þutum við niður á ógnarhraða. Ulfi leyst ekkert á blikuna fyrr en svona mínútu eftir lendingu þá bara „Aftur, aftur...“ verst að við vorum ekkert svo til í að fljúga langt út á gólf aftur ;). Beta labbaði með okkur í gegnum miðbæinn, við kíktum í búðir og Úlfur fékk að fara í brjálaða lest og leikgarð með sjóræningjaskipi.
Á páskadag höfðum við það kósí og byrjaði dagurinn á mikilli páskaeggjaleit enda fengu krakkarnir 9 páskaegg, takk fyrir! Úlfur vissi ekkert hvað var í gangi en fannst frábært að vera opna alla skápa og snúa öllu við og finna svo NAMMI á ótrúlegustu stöðum. Þó áhuginn hafi verið gífurlegur hjá krökunum yfir þessum haug af páskaeggjum var bara borðað örlítið brot. Úlfi þótti páskaunginn frekar mikið spennandi en mjög óhugnalegur í senn.... soldið ógeðslegt að koma við hann, ha ha ha. Það eina sem hann gerði var að reyna bíta aðeins ofanaf egginu og borða nokkur nóakropp, þá var toppnum náð. Svo voru Mikka mús vöfflur sem vöktu mikla gleði og rest af degi fór í að slæpast og svo um kvöldið kom Villi kærastinn hennar Stefaníu (auperin) og eldaði fyrir okkur eina af bestu humarsúpum sem við höfum fengið, svo tók við geggjað carpaccio, tómatar og mozarella, reyktur lax og parmaskinka - þvílík veisla :)
Bæti inn fleiri myndum á morgun... og léleg tenging hérna til að upploada myndum :)

3 Comments:
At 23:03,
Nafnlaus said…
Gaman að sjá lokst myndirnar frá páskunum, flott þessi frændsystkini verð ég nú bara að segja.
At 14:36,
Nafnlaus said…
Æðislegar myndir frá Lúx og skemmtilegar lýsingar frá fjörinu:)
Söknum ykkar
Knús Erna og Hlynur
At 22:45,
Nafnlaus said…
Æðislega skemmtilegar myndir. Greinilega alltaf stuð hjá ykkur. Hvenær á að kíkja til Montreal? Kær kveðja, Dóra
Skrifa ummæli
<< Home