Nýársdagur og 13dinn
Við kíktum í heimsókn til ömmu og afa á nýarsdag í ýmsar kræsingar. Það var búið að vera stanslaust kökuboð en allir voru á heimleið þegar við komum þannig við áttum voða kósídag með kökum og auðvitað fékk úlfurinn að skella sér í bað sem er orðinn hálfgerð hefð he he. Á þrettándanum var mikið fjör og kíktum við til ömmu Ingu og afa Dolla. Í götunni þeirra búa vægast sagt sprengjubrjálæðingar og var sprengt stanslaust frá því við komum um 6 langt fram á kvöld, Úlfi til mikillar gleði. Amma íssss stóð undir væntingum og gaf litla kallinum sínum auðvitað nóg af ís og góðgæti. Allir borðuðu á sig gat af góðum mat og svo kíktum við út til að sprengja um restarnar :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home