Ævintýri Úlfs

sunnudagur, desember 30, 2007

Jólajól

Jæja nú er komið að jólapistlinum. Við skemmtum okkur konunglega yfir hátíðarnar og Úlfur var mikið að brasa og snéri sólahringnum hressilega við :) Á Þorláksmessu borðuðum við hjá Ella og Önnu Lilju svo Úlfur og Bjarki Heiðar fengur að leika eins og óðir apar... he he. Við fórum í göngu niður Laugarveginn um 10 og Úlfur var í þvílíku stuði alveg þangað til við komum niður á Laugarveg - þá steinsofnaði litli kúturinn.
Á aðfangadag fengum við voðalega góðan graut á efri hæðinni og Yrja og Úlfur átu saman sápukúlur he he eða reyndu það allavegana! Um kvöldið fórum við til ömmu Ingu og afa Dolla, borðuðu góðan mat með litlu krúttunum Birgittu og Inga. Krakkarnir voru orðinn voðalega spennt fyrir kvöldinu og Úlfur reyndi ítrekað að opna sama pakkann fyrir matinn he he. Loksins loksins var beislinu sleppt og Birgitta og Ingi réðust á pakkana af mikilli snilld, greynilega búinn að grandskoða þá alla og finna sína :) Úlfur varð líka voðlega spenntur og byrjaði að rífa upp sína pakka með mikilli fimi. Toppurinn var svo alvöru munnharpa frá löngu og langa á efri hæðinni og tók hann óspart lagið fyrir okkur milli þess að klappa fyrir sjálfum sér he he. Hann entist nú ótrúlega lengi í að opna og vildi nú helst bara slappa smá af á milli og leika með nýja dótið - hrikalega spennandi. Undir lokin var úlfurinn komin með nóg og reddaði þá Birgitta málunum, enda fannst henni það algjör vitleysa að geyma pakka til morgundagsins, og hjálpaði litla frænda að rífa upp rest á örfáum mínutum. Eftir ísát og dansseríu með frændsystkynum sínum var tími til að halda heim á leið og hélt Úlfur sér vakandi við tilhugsunina að hitta Yrju, ömmu Stínu og afa langa. Hann var enn í stuði þegar á Ásó var komið um 11... og neitaði að sofna fyrr en eftir miðnætti, uss! Fórum með heilan farm af jólagjöfum heim en samt beið okkar stór poki sem gleymdist - held við verðum að kaupa íbúð utan um allt þetta dót.



He he he Úlfur búinn að hrúga dóti á sofandi pabba sinn :)
Halldór varð frekar hissa þegar hann vaknaði...

Rosa stuð á Þorláksmessu, Úlfur í hláturskasti...

Hei hei hei, meira stuð!

Litli sæti labbakútur með múttu

Líka pósa með pabbalíng

Bjarki Heiðar komin út - alveg að sofna litli kúturinn

He he mamma datt á rassinn...

...og það var bara hlegið að henni!

Famelían að leggja í hann

Steinsofnaður og komin á Laugarveginn

Litlu Kanadabúarnir orðnir útlendingar að sníta sér

Grjónagrauturinn kominn á borð!

Nei ég neita að smakka þetta!!!!

Mmmmm smakkast ekki sem verst :)

Úlfur og Yrja að sprengja sápukúlur

Geðveikt fjör að elta þessar sápukúlur...

Meira Kolla frænka, meira!

Kominn til Svanhildar sætu frænku

Stóri frændi var aðaltöffarinn

Best að skoða þessa pakka vel :)

Fékk einn pakka fyrir matinn :)

Vá tígrakubbar...

Töffarinn að bíða eftir forréttinum

Stóra frænka mætt til að hjálpa :)

Vó risa bíll (sem pabbi fékk svo bara að leika sér með)

Voðalega fínn pakki frá Úu

Maður verður nú að vanda sig...

Íha komin með munnhörpuna, nú verður fjör!

Úti að leika með ömmu og Yrju

úff kominn tími til að koma inn, var samt ekki alveg til í það :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home