Ævintýri Úlfs

fimmtudagur, janúar 03, 2008

Milli jóla og nýárs

Nóg var af boðum milli jóla og nýárs og mikið um að vera. Á jóladag var kaffi, kökur og hangikjöt hjá Betu langömmu og Villa langafa og allir úr móðurfjölskyldu Halldórs þar samankomnir. Frændurnir 3 sem eru allir á sama aldri skemmtu sér vel saman og léku út um allt hús. Eftir allar kræsingarnar var ferðinni haldið til Völu langömmusystur Úlfs. Þar var að finna alla móðurfjölskyldu Öggu og fengum við okkur hangikjöt og eftirrétti þar og spiluðum smá við famelíuna. Úlfur var í essinu sínu og hljóp hring eftir hring um íbúðina með Kolfinnu í eftirdragi.
Milli jóla og nýárs buðu amma Inga og afi Dolla Úlfi á fyrst jólaballið hans, reyndar rétt misstum við af sveinka kallinum en það var voðalega gaman að hitta Birgittu og hlaupa í kringum jólatréð. Svo dönsuðu feðgarnir í kringum jólatréð með afa og Birgittu og hinum krökkunum, s.s. hrikalegt fjör sem endaði með hlaupleik niður ramp með stóru frænku og nammipoka frá jólasveininum. Sem betur fer var bara sport að halda á pokanum og minna spáð í innihaldið :)
Við kíktum í heimsókn líka til að leika við Inga og Birgittu og Úlfur skemmti sér einstaklega vel, nú þarf ekki annað að segja að við séum að fara til ömmu Ingu og þá heyrist í Úlfi "amma íssss". Það fyrsta sem hann gerir núna er að hlaupa að ísskápnum og biðja um ís og klaka. Hann kann að toga í alla mögulega spotta núna :)

Aðeins að skoða jólasveinina í glugganum með Arnóri og ömmu

Sætilíus náði sér í epli

Vá vá Daníel fékk rosa flott skip í jólagjöf

Mættur á jólaballið með Birgittu sinni

Smá feimni í gangi hjá frænsystkinunum

Hvað er í gangi???

Litlu krúttin að fara dansa saman :)

Smá pása til að knúsa pabba sinn

Úlfur, Halldór, Dolli og Birgitta að dansa með krökkunum

Afi með snúllurnar sínar að sýna þeim réttu sporin

Geggjað fjör að hlaupa með Birgittu upp og niður lítinn pramma

Hí hí hí gaman að hlaupa með nammipokann sinn

Vertu kyrr Úlfur ég þarf að greiða þér....

Fína jólatréð hjá ömmu og afa

Rosa spennandi, vá vá

Ví gaman að hoppa með Birgittu og Betu

Vúhú!

Jibbí

Litla krútta að hoppast

Og ein sæt í lokin

6 Comments:

  • At 16:07, Blogger Halldór said…

    búhú held að allir séu hættir að commenta eða kvitta fyrir komu :(

    kvittíkvitt :)

     
  • At 20:18, Anonymous Nafnlaus said…

    Hó Hó
    Frábært að sjá hvað allir skemmta sér vel, Meiriháttar gaman að geta fylgst með héðan frá Afríku
    Bestu kveðjur til allra.
    Afríku Afi....

     
  • At 22:41, Anonymous Nafnlaus said…

    Amma Inga er alltaf að kvitta og kíkja:) Æðislegar jólamyndir af litlu krílunum, amma er ekkert smá rík að eiga þessi fallegu barnabörn, óendanlega stolt af þeim. Ég var líka voða kát að fá stubbinn minn í heimsókn á þrettándanum, verst að við skulum vera á sitt hvorum enda borgarinnar. Sjáumst vonandi eftir helgina, þegar amma kemur heim frá Ameríkunni.
    Ástarkveðja og knús, Amma-Issssss

     
  • At 20:52, Anonymous Nafnlaus said…

    Sorry maður verður að vera duglegri að kvitta!

    Kíki oft á myndirnar á litla úlfinum og fjölskyldunni!

    Frábærar myndir frá jólunum;)

    Knús Erna í Philly

     
  • At 18:08, Anonymous Nafnlaus said…

    Kíki oft hér inn á frænkurölti um netið. Verð að fylgjast með þessum æðislegu krúslum sem ég á þarna fyrir sunnan en hitti því miður allt of sjaldan.
    Frábærar jólamyndir af þeim.

    Sjáumst vonandi á þessu ári :)

    Kveðja úr Vatnsdalnum
    Þórunn

     
  • At 11:32, Anonymous Nafnlaus said…

    jiii sæti sæti þetta er nú ekki nógu gott að mamma þín kemur ekki með þig að hitta mig hehh en við bætum úr því:) alltaf svo mikið að gera hjá ykkur litla fjölla......verðum að fara að hittast HC og Prinsinn sem fær bráðum nafn:):):)

     

Skrifa ummæli

<< Home