Snjór snjór snjór
Fórum í sveitina til ömmu Stínu og vá vá vá þvílíkur snjór. Amma þurfti að sækja okkur yfir hólinn, mikið fjör að fara í risabílnum í nístandi kulda. Úlfur var voða glaður að hitta Yrju sína og knúsaði ömmu sína óspart. Á laugardeginum var skellt sér út í snjórinn og úff... snjórinn var svo djúpur að Úlfur átti í erfiðleikum með að labba og bað bara um hjálp :) Það var voðalegt fjör að vesenast í snjónum en Yrja var ekkert sérstaklega sátt þegar amma og Úlfur fóru að gera snjóengla, hélt eflaust að þau væru að týnast í snjónum, gelti og gleti og togaði í ömmu. Úlfur fékk að sitja upp á risajeppanum hans afa og toppurinn var svo þegar hann fékk að renna sér í fangið á ömmu... meira, meira!!! Í desert fékk hann sér svo grýlukerti og litli kallinn eeeelskar klaka ha ha, eins og sést :)

4 Comments:
At 16:00,
Nafnlaus said…
Vá eplakinnar og allt á kafi. Mér finnst ekkert skrýtið að greyið barnið hafi verið í vandræðum í þessu snjóhaug!!!
Knús frá Philly
Erna
At 21:37,
Halldora said…
Gaman að sjá myndir, Úlfur alltaf jafnmikið krútt. Líka frábært að það sé svona mikill snjór á Íslandi, sérstaklega á suðvestur horninu, það hefur ekki gerst lengi. Kær kveðja frá Montreal, Dóra
At 13:00,
Nafnlaus said…
Hæ sæti strákur
Sé að það er sko meira fjörið að fara upp í sveit til ömmu og afa:)
Biðjum innilega að heilsa mömmu þinni og pabba. Allt of langt síðan við sáumst síðast
Kossar og knús frá Eyjum
Anna Rós og co..
At 11:10,
Nafnlaus said…
Hæ, hæ.
Elsku kallinn hennar ömmu.
Gaman að skoða vetrarmyndirnar úr Borgarfirðinum. Þú ert svo mikið krútt í eskimóa gallanum þínum:)
Knús,
Amma
Skrifa ummæli
<< Home