Ævintýri Úlfs

föstudagur, janúar 04, 2008

2007/2008

Ármótin voru voðalega róleg hjá litlu fjölskyldunni þetta árið. Við borðuðum yfir okkur af ýmisskonar hreyndýraréttum með ömmu Stínu, Kolfinnu, langafa, langömmu, Villa frænda og Yrju. Úlfur át svo yfirsig af eftirrétti og reyndi að halda Yrju frá gotteríinu. Eftir matinn hélt úlfurinn munnhörpukonsert fyrir Villa frænda sinn sem átti ekki til orð yfir því að það væri barnið sem væri að spila :) Dóra og Pési komu í heimsókn til að horfa á skaupið og því miður fengu Halldór og amma Stína í magann strax eftir matinn og lágu það sem eftir var af kvöldinu. Halldór hressti sig við til að kíkja út með úlfinn til að kíkja á sprengjurnar og vá hvað var gamann. "Búmm búmm" heyrðist á nokkurra sekúnda fresti og ég átti í fullu fangi með að halda á honum þegar hann hallaði sér afturábak. Allt var voða spennandi þangað til 2 min í 12, þá kúrði úlfurinn sér í hálsakotið og steinsofnaði og svaf í gegnum lætin frá sprengjuóðu íslendingunum :)

p.s. sorry pabbi ég var löngu búinn að setja þetta inn en gleymdi að ýta á publish post hehe! Set fleiri myndir í kveld eða á morgun...

Búinn að nappa peru og eplum frá löngu

En mamma má ég ekki borða miðann?

Þessi bók er í miklu uppáhaldi þessa dagana og situr hann þá og
telur upp dýrin og ekki má gleyma bóndanum

Munnhörpukonsertinn flotti, set inn videó seinna :)

Litli hringjarinn frá Ásvöllum

Feðgarnir á spjallinu

Mmmm voða gott creme bruleé

Má ég líka fá smá...

Amma og Yrja tilbúinn í slaginn

Ásvallagengið tilbúið í slaginn

Sjónvarpssjúklingakjúklingarnir

Ahhh gott að lúra á Yrju sinni

Kolfinna og Yrja að kúra saman

Jæja mættur út í nóttina

Stuð með pabba :)

3 Comments:

  • At 23:36, Anonymous Nafnlaus said…

    Hó Hó Hva ég hélt að ég væri með einkaleyfi á alsæmer light hehe
    Rosa fínar myndir það verður að líta á björtu hliðarnar hér í Afríku nú get ég sprengt tvöfaldanskammt næstu áramót hehehe

    bestu kveðjur Nonni Afi XXXXXX

     
  • At 00:05, Anonymous Nafnlaus said…

    Sætur með Yrjunni sinni, líka flottir frændurnir í munnhörpukonsertnum, sækir musikina greinilega í móðurættina:)

     
  • At 00:07, Anonymous Nafnlaus said…

    Amma Inga skildi eftir skilaboðin hér að ofan:)

     

Skrifa ummæli

<< Home