Febrúar
Jæja kominn tími á smá myndaseríu þar sem ýmsir aðilar hafa verið að kvarta undan myndaskorti :) Þessi mánuður er búinn að fljúga í burtu annsi hratt. Famelían er búinn að vera annsi busy í vinnu og útstáelsi. Úlfur talar og talar og þykist nú meðal annars geta ráðið innkaupum heimilisins „Mamma kaupa ís, kess, djúúússs... húrra, húrra“ og ný orð bætast við orðaforðann daglega. Svo er kominn nýr hlátur sem fær pabba hans til að fá krampa af hlátri - hreinn víbrandi uppúrkreistingur sem hljómar eins og spæta! Verð að ná þessu uppá videó og setja inn, algjör snilld ha ha ha.
Úlfur er alltaf í essinu sínu þegar hann fær að hitta vini sína Bjarka Heiðar og Elísabetu Úu. Strákarnir hittast reglulega og bralla eitthvað sniðugt saman og Úlfur er farinn að þekkja leiðina til Ella og Önnu Lilju og segir nöfnin á allri fjölskyldunni þegar rennt er í hlað. Þeir eiga það sameiginlegt að elska Dóru landkönnuð og Úlfur getur núna sungið smá með og þekkir alla þá þætti utanbókar sem pabbi hans er með á tölvunni - blaðrar oft ýmiss stef og finnst mikið fjör að fara uppá "hæstu hæð" sem er pínkulítill hóll bakvið hús. Við fótum líka um daginn og löbbuðum hringinn í kringum grasagarðinn með Úu og þau hlupu allan tímann í sólinni og snjónum - þvílíkt fjör. Úlfur var svo búinn á því eftir þennan langa hlaupatúr að hann lagðist niður á mínutufresti síðasta spölin. Toppurinn var svo að skoða fiskana og fá að gefa þeim smá kleinu :) Þeir urðu óðir og Úa skipaði þeim að bíta sig ekki en Úlfur var alveg til í að skella sér útí ha ha.
Úúúújee stuð að lesa bók í bala ofaná feitadrengnum
Ofurhuginn - ekki hræddur við neitt (því miður stundum)

7 Comments:
At 20:35,
Nafnlaus said…
Halló
Flottur Jakki tvítt
ekkert smá frábærar myndirnar ég sé nú suma í anda að stjórna innkaupum á heimilinu hehe
verð að fara að hitta ykkur
kv frá okkur af hæðini
At 16:25,
Kolla said…
Hæhæ Sæta fjölskylda.
Ég er að koma í bæin um næstu helgi og verð sko alveg fram yfir páska. Held að það sé nauðsynlegt að við hittumst og leyfum dúllunum okkar að hittast.
Heyri í þér Agga mín í næstu viku!
Knús á ykkur
Kolla
At 09:56,
Nafnlaus said…
Flottar hoppumyndirnar af vinunum, þeir fá fína útrás þarna.
Gott hjá Úlfi að geta aðstoðað ykkur við innkaupinn, svo gott ef maður man ekki alveg hvað á að fara í innkaupakörfuna:)
At 18:56,
Nafnlaus said…
Alltaf gaman að sjá myndir og heyra af litla manninum:)
Knús
Erna
At 21:36,
Nafnlaus said…
Er ekki komin tími á mars/aprílmyndir ???
Knús frá Philly
Erna
At 12:56,
Nafnlaus said…
Hummmmmm er Febrúar neiiii Agga það er Apríl
At 17:23,
Nafnlaus said…
Hæ hæ
Vildum bara kasta á ykkur smá kveðju. Langt síðan við höfum heyrt í ykkur ;)
Bestu kveðjur úr Eyjum
Anita og Bernódía Sif
Skrifa ummæli
<< Home