Ævintýri Úlfs

sunnudagur, desember 16, 2007

Litlu jólin

Fórum uppí bústað til að halda "Litlu jólin" með ömmu og afa áður en afríkuafi fer á sjóinn fyrir jólin. Borðuðum besta mat sem við höfum fengið lengi og átum á okkur gat... vægast sagt! Úlfur orðinn gourmet kall, ummmaði allan tímann yfir grafinni gæs og gröfnu hreindýri og svo smjattaði hann á hreindýra carpaccio og reyktum lax - ofsalega gott! Í aðalrétt tók við tvær gerðir af hreyndýri með himneskum sósum sem óspart var dýft í :) Langamma og langafi komu og borðuðu með okkur og höfðu það kósí um kvöldið með okkur. Úlfur fékk að prufukeyra jólin þegar hann hjálpaði afa Nonna að opna pakkana sína og þvílíkt fjör.... "PAAAKKAAAAA" og svo bara byrjað að rífa upp :) Hann verður glæsilegur á aðfangadagskvöld - úff he he. Úlfur neitaði að fara sofa og var í essinu sínu til að verða 11 en vaknaði samt galvaskur um 8 og fékk heitt súkkulaði og hveitikökur í morgunmat... þvílík veisla! Reyndar var súkkulaðið í litlum espressobolla þannig Úlfur hélt því staðfastlega fram að þetta væri BJAKK (kaffi), og varð frekar hissa þegar hann þorði að smakka, "ummmm bjakk" var þá svarið sem við fengum. Úlfur og Yrja verða meiri vinir í hvert skipti og eltir hann hana hvert sem hún fer, knúsar hana og kjassar og þykir best að liggja með henni í bælinu hennar, við misafnar undirtektir foreldra :) En jæja nóg í bili set meira inn um jólin.

Bestu vinirnir að knúsast út í glugga

Þetta er uppáhaldsstaður þeirra :)

Úlfur kominn út í nýja snjógallanum frá afa Nonna

Geggjað fjör úti og litli gaur neitaði að koma inn

Á leiðinni út í nýja pottinn, komin með nýtt dót! Rosa flott!

Best að knúsa aðeins Yrju mína... gobbedígobb :)

Ahhh best að sitja hér og horfa á teiknimyndir

1 Comments:

  • At 09:58, Anonymous Nafnlaus said…

    Flott myndbandið af þeim stutta sem reynir allt til að sanna getu sína og sjálfstæðan vilja, en er sífellt truflaður af pabba sem vill stöðugt taka í taumana:)
    Í sveitinni finnst Úlfi örugglega sem hann loks hafa öðlast frelsi þar sem víðáttan blasir við í allar áttir, svolítið frábrugðið því sem hann er vanur.

     

Skrifa ummæli

<< Home