Horugur og duglegur
Úff hvað það er mikið að gera hjá Úlfi þessa dagana... hann er mikið að flýta sér að verða stór. í dag reyndi hann mikið að byrja skríða uppi hjá langafa sínum að elta steineggin hans og klifra á mömmu sinni. Hann er byrjaður að geta sest upp sjálfur með því að gera mega magaæfingar og togar sig upp allstaðar þar sem hann nær taki. Ég ákvað að lækka rúmið hans í kvöld og Úlfur var heldur betur hissa á þessu nýja rúmmi. Byrjaði strax að vesenast í rimlunum og toga sig upp... og viti menn hann náði að standa upp! Ekkert smá stoltur, hló og hló og hoppaði til og frá. Amma Stína og Kolfinna komu akkúrat til að sjá hann standa upp og hlægja með :)






1 Comments:
At 19:16,
Nafnlaus said…
Blessuð Agga mín og til hamingju með prinsinn...ég vissi bara ekkert af þessu fyrr en nú :0) Hann er nú meiri krúttið..
Hafið það sem allra best..
Kær kveðja frá Selfossi
Þórunn Lísa (úr eyjum)
blog.central.is/langamyri
Skrifa ummæli
<< Home