Áramót
Um áramótin borðum við á okkur gat hjá ömmu og afa í grafarvogi með Bigga og Betu og co. Eftir að allir voru mun meira en saddir eftir allar kræsingarnar fórum við heim til pabba Bigga þar sem fjölskyldan kom til að skjóta upp og horfa á skaupið. Úlfur skemmti sér konunglega og var ekkert að kippa sér upp við lætin í bombunum og lét sér lítið um það finnast þegar það byrjaði að rigna yfir okkur gráum fligsum og spýtum en ég ákvað að flýja inn út kuldanum. Afi Dolli tók að sér stöðu sprengjukóngs og sprengdi í gríð og erg með öllum þeim sem að létu kuldann ekki á sig fá he he. Eftir miðnætti fórum við heim og komu þá Erna og Hlynur og Pési og Dóra í heimsókn, Úlfur var í svo miklu stuði aðhann var ekkert á því að fara sofa og sofnaði ekki fyrr en hálf 3 eða fjögur... man ekki alveg nákvæmlega kl hvað því ég hef eytt þessu úr minni mínu. Fékk svo mikið sjokk þegar Hlynur sagði mér hvað klukkan væri. Afi Nonni og amma Stína komu svo við á leiðinni heim og sögðu okkur sprengjusögur því Nonni afi er alveg jafn sprengjuóður og afi Dolli :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home