Pabbi er alltaf duglegur
Jæja þá er stóra stundin runnin upp, ég ætla að blogga. Við eigum enn eftir að birta myndir frá jólum og áramótum og koma þær hér fyrir neðan.
Byrjum á Þorláksmessu, þá fórum við upp á efri hæðina á Ásvallagötu til langömmu og langafa. Ég man ekki eftir að hafa séð skötu áður en ég get með góðri samvisku sagt að hún lítur jafn illa út og hún lyktar. Úlfur lét þetta samt lítið á sig fá og skemmti sér konunglega.
Úlfur strax kominn í jólaskap
Svo á aðfangadag fórum við til Stínu ömmu og Nonna afa. Þar fengum við alls kyns kræsingar og heilan haug af pökkum. Úlfur var alsæll og vildi alls ekki fara að sofa enda sjaldan sem maður fær jafn mikið af pökkum á einum og sama deginum.

2 Comments:
At 11:27,
Nafnlaus said…
Maður verður nú að kasta inn kveðju eftir svona flott update frá pabba ;) ég vissi að kallinn gæti þetta! En annars er Úlfur alltaf jafn mikið æði og hlakka ég mikið til að geta knúsað hann í saumó eftir 2 vikur ;)
kveðja frá Köben
At 13:23,
Nafnlaus said…
vei vei pabbi var duglegur... jæja nú eru bara þrjú holl eftir! Milli jóla og nýárs, áramótin og svo janúar :)
vonum að það gerist fljótt því úlfi finnst svo gaman að skoða myndir af sjálfum sér he he
agga og úlfur
Skrifa ummæli
<< Home