Ævintýri Úlfs

miðvikudagur, mars 07, 2007

Dansi dansi og boltaleikur

Jæja nú er Úlfur farinn að dansa, akkúrat tímanlega til að geta dansað við Birgittu sína. Úlfur á líka eflaust eftir að skemmta sér vel með Ingu ömmu þegar hún syngur "dansi dansi" sönginn sem ég heyrði annsi oft þegar Birgitta var yngri. Eftir langann dag var Úlfur var reyndar orðinn soldið ruglaður og í kvöld þegar hann var með ömmu Stínu fór að tjútta við það eitt að vera spurður hvað hann væri stór he he he.
Halldór er líka búinn að kenna honum að rúlla bolta á milli og getur Úlfalingurinn núna farið í boltleik við Inga Rúnar þegar við kíkjum í heimsókn til lúx í næstu viku :)



1 Comments:

  • At 17:13, Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert sko mesta krúttið :), takturinn í lagi og alles :)
    Knús
    Lúxarar

     

Skrifa ummæli

<< Home