Ævintýri Úlfs

föstudagur, mars 02, 2007

Cheerios

Vúhú núna er Úlfur farinn að borða Cheerios. Ótrúlega skemmtilegur matur :) Úlfur vissi nú ekki í fyrstu hvað hann ætti að gera við þessa litlu hringi og henti þeim bara á gólfið en svo stakk ég einum uppí hann með hendinni hans og þá fór boltinn að rúlla. Reyndar tekur hann oftast hringina upp með vinstri, reynir svo að taka hann úr vinstri hendi með hægri og svo loksins í munninn... krísuvíkurleið góðan daginn! En hann er voða klár í fínhreifingunum... duglegur strákur :)



2 Comments:

  • At 23:47, Anonymous Nafnlaus said…

    segið svo ég bjargi mér ekki, er þetta kannski upphafið af: "súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin" Alla vega góð byrjun hjá þeim stutta í hringjunum.
    kv. amma í Grafó

     
  • At 19:05, Anonymous Nafnlaus said…

    Það er búið að horfa á myndbandið í það minnsta 15 sinnum í röð. Birgitta talar við Úlf í gegnum tölvuna og sagði honum að bíða aðeins á meðan hún færi á klósettið kom svo aftur og horfði meira á litla kút :).. Okkur hlakkar rosalega mikið til að fá ykkur til okkar :)..
    Knús og kossar frá Lúx

     

Skrifa ummæli

<< Home