Bra bra
Litla fjölskyldan fór í dag í gönguferð í góða veðrinu. Við fórum á apótekið og fengum okkur að borða og röltum svo á kaffitár og fengum okkur kaffi til að rölta með um miðbæinn. Keyptum brauð og fórum svo að gefa öndunum. Þar hittum við Önnu Lilju, Ella og auðvitað Bjarka Heiðar svefnpjakk. Elli, Halldór og Úlfur sýndu snilli sýna í brauðbitahendingum en Úlfi fannst reyndar mun meira spennandi að borða brauðið sjálfur en að henda því frá sér he he. Enda ekki á hverjum degi sem maður fær heilt brauð í hendurnar! Þeir feðgarnir slógust um bitana og Úlfur var alveg búinn á því eftir þessar bæjarferð og steinsofnaði um leið og hann fór í kerruna :)

3 Comments:
At 00:57,
Nafnlaus said…
Gaman að sjá myndir og heyra fréttir af ykkur. Við erum að fara í fimm daga snjóbrettaferð til norður Québec á mánudaginn, þ.e.a.s. ef heilsan hans Pésa leyfir. Hann er hálfslasaður eftir fótbolta á mánudaginn.
Kær kveðja,
Dóra og Pési
At 15:14,
Nafnlaus said…
Mikið hefur veðrið leikið við ykkur þarna við tjörnina, flottar myndir. Ég er ánægð með hvað foreldrarnir eru að standa sig með ungann, svona á þetta að vera.
Bið að heilsa sætasta stráknum í bænum og þó víða væri leitað.
Amma í Grafó
At 18:04,
Nafnlaus said…
Hæ sæti frændi :)
Ákvað að kvitta nú einu sinni fyrir heimsókn og myndaskoðun.
Ég kíki reglulega hér inn því það er svo gaman að fylgjast mér því sem þið í litlu fjölskyldunni eruð að gera. Við hittumst svo rosalega sjaldan.
Fáum vonandi að sjá þig í eigin persónu áður en þú verður eins árs :)
Kveðja úr sveitinni.
Þórunn og allir hinir.
Skrifa ummæli
<< Home