Sumarbústaðurinn
Við mæðginin skelltum okkur í bústað með ömmu Stínu og afa Nonna áður en afi fór á sjóinn. Halla, Ingvi og Bríet komu með og höfðum við það voða gott í pottinum og kíktum á nýja bústaðinn hjá afa og ömmu. Úlfur skemmti sér hrikalega vel í pottinum og skvetti á allt og alla á meðan við reyndum að horfa á handboltaleik. Svo fórum við inn að borða og litli úlfurinn fékk einhvern agalegan dósamat við litla gleði, bættum fljótt úr því og buðum honum graut og banana sem var muuun betra. Fórum í göngutúr í kringum bústaðinn daginn eftir og Úlfur fékk að vera á háhest hjá ömmu sinni... ekkert smá gaman og skríkti hann allann tímann! Komum heim til pabba á sunnudeginum og fékk hann að skipta á fyrstu kúkableigjunni í langan tíma og greynilegt að hann var ekki í æfingu... eins og sjá má :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home