Ævintýri Úlfs

mánudagur, febrúar 12, 2007

Milli jóla og nýars

Jæja um að gera að koma þessum myndum í umferð :) Á jóladag byrjuðum við að fara í matarboð til Betu langömmu og Villa langafa. Þar var múgur af margmenni af skilmennum og nóg um að vera. Úlfur naut sín í botn að leika við stóru frændsystkini sín.

Lizzy frænka að sýna mér fínu teygjuna sína

Beta frænka og Úlfur í fullu fjöri

Úlfur og ingi Rúnar að knúsast

Daníel stóri frændi og Ásdís frænka

Eftir allt fjörið þá skelltum við okkur í næsta jólaboð til Gulla frænda og hittum hinn helminginn af frændfólkinu. Nú var búið að vera svo mikið fjör að Úlfur neitaði að leggja sig og var orðinn frekar þreyttur um köldið en hann lagði sig í bílnum á leiðinni heim til ömmu Stínu og afa Nonna þar sem við lúrðum með Kolfinnu því pabbi fór að leika við strákana.

Ættliðirnir 5 í sófanum

Á annan í jólum fórum við til ömmu og afa í grafarvogi og hittum Betu og Bigga og krakkana. Úlfur var rosa glaður að hitta Inga Rúnar og Birgittu og Svanhildur hoppaði um allt til að gleðja litlu krílin.

Úlfurinn hress og til í tuskið

Wazzzupp....

Úlfur hress hjá ömmu Ingu

Úlfur dolfallinn yfir Svanhildi hoppandi í sófanum

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home