Ævintýri Úlfs

föstudagur, janúar 12, 2007

Bíðum eftir að pabbi verði duglegur

Er alltaf á leiðinni að setja inn fleiri myndir frá jólunum og áramótunum en allar myndirnar eru á tölvunni hans Halldórs og hann er soldið latur við þetta og þegar ég ætla að vera dugleg eins og núna þá tók hann tölvuna með sér... uss! Annars er það að frétta að Úlfur er byrjaður að velta sér og er voða stoltur. Hann byrjaði á því í miðju MH-stelpumatarboði og skríkti af gleði þegar honum tókst þetta :) Núna er líka voða mikið fjör að smakka á nýjum mat og höfum við komist af því að honum finnst epli og perur heldur og súrar fyrir sinn smekk og er ekki mikið fyrir mat sem er illa stappaður he he. Þannig nú er bara fjör, fjör, fjör og að safna undirhöku og kinnum. Vona að Dórus verði duglegur að blogga eitthvað á næstunni :)

4 Comments:

  • At 13:36, Anonymous Nafnlaus said…

    Áfram Halldór vertu nú duglegur okkur langar svo að fara að sjá fleiri myndir og fréttir!!!!
    Hvernig væri bara annars að kíkja frekar í heimsókn:)
    Verð að fara að sjá ykkur- alltof langt síðan.
    Bætum úr því sem fyrst
    Kossar og knús
    Anna Rós og co.

     
  • At 11:14, Anonymous Nafnlaus said…

    Hvað er að frétta- ekkert að gerast hér!! Pabbinn greinilega ekki nógu duglegur:)
    Eru þið nokkuð horfin af jörðinni er líka búin að vera að reyna að hringja í ykkur:)
    Jæja hætt að kvarta- kossar og knús
    Kv. Anna Rós og co
    Síú sún!!!

     
  • At 08:42, Anonymous Nafnlaus said…

    KOMA SVOOOOO.....
    Ég hef fulla trú á þér Halldór að þú getir þetta :) hehe
    Kveðja frá Köben

     
  • At 14:57, Anonymous Nafnlaus said…

    Hvaða, hvaða, er pabbi búinn að týna tölvutetrinu sínu. Amma trúir þessu varla upp á drenginn sinn, skamm, skamm.
    Reyndu að standa þig strákur - það standa greinilega öll spjót á þig.
    Bið að heilsa litla Úlfinum mínum.
    Amma í Grafó

     

Skrifa ummæli

<< Home