Loksins smá video
Jæja ég ákvað bara að skella Úlfi á youtube svo þið gætuð nú horft á smá video af honum blaðrandi og dansandi við Birgittu Sóley frænku sína í Lúx.
Núna er Úlfur reyndar næstum hættur að spjalla svona eins og hann gerði, hann ákað að tala voða lítið við okkur í 2 vikur og svo þegar hann byrjaði aftur komu allt önnur hljóð. Núna er nýjasta nýtt að sjúga á sér neðri vörina eins og afi Nonni gerði, þá kemur óttalegur sauðasvipur upp sem vekur ávallt upp hlátur. Annars er búið að vera mikið að gera og Úlfur var mikið hjá ömmu Stínu um helgina að hjálpa við að flytja... reyndar voru allir aðrir að hjálpa við að flytja og þrífa en komu við hjá Úlfi öðru hvoru til að spjalla og hlægja. Rólan frá Betu og Bigga var sett upp og vakti mikla kátínu. Úlfur fékk að róla sér á meðan mamma prjónaði og horfði á sjónvarpið með ömmu Stínu, báðum Hönnu Cörlunum sínum og Kolfinnu.

1 Comments:
At 18:50,
Nafnlaus said…
Ohh hvað þetta var æðislegt :D að sjá videó af þér. Þú ert nú bara algjör dúlla litli frændi.
Biðjum að heilsa mömmu og pabba
Kveðja Ásdís og Daníel
Skrifa ummæli
<< Home