Ævintýri Úlfs

föstudagur, október 20, 2006

Bleyjukóngurinn

Nonni afi útnefndi sjálfan sig sem bleyjuskaffara þegar Úlfur fæddist og hefur reglulega komið í heimsókn með bleyjur! Núna er afi út á sjó hjá Kanarí og kemur ekki aftur heim fyrr en í desember, en afi kallinn hefur greinilega einhversskonar yfirnáttúrulegt beyjuskilningsvit því akkúrat þegar við vorum á síðasta pakkanum þá hringir hann í ömmu Stínu og fyrirskipar bleyjuleiðangur, he he. Takk fyrir okkur :) og kveðjur frá Úlfi - yfirdrullumallara á Ásvallagötu.

3 Comments:

  • At 16:42, Blogger Erla Perla said…

    Hehe, það er ágætt að þið hafið styrktaraðila í bleyjukaupunum, ekki veitir víst af ;)

    Kv.erla perla

     
  • At 20:17, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ, ég kíki alltaf annað slagið, gaman að sjá myndir. Úlfur er orðinn svo stór, hann má ekki flýta sér allt of mikið að stækka áður en við sjáum hann um jólin. Hlökkum rosalega til að hitta ykkur öll,

    Dóra

    P.s. Pétur leigði sér PS2 og er núna í Fifa07, PES var ekki til...

     
  • At 21:17, Blogger Halldór said…

    Ertekki að grínast... garg
    Segðu pésa að PES leikurinn heitir í Bandaríkjunum Winning eleven 10.

    Dóri og Elli - sýndarveruleikafótboltabullur

     

Skrifa ummæli

<< Home