Ævintýri Úlfs

þriðjudagur, október 10, 2006

Grátur og gnístan tanna

Við lentum í þeirri óheppni að myndavélinni okkar var stolið af okkur á vellinum eða í flugvélinni á þeiðinni heim frá Lúx :(
Því miður voru um 500 myndir sem fóru í súginn þar, því ég (agga) var búinn að tossast síðustu mánuði við að skella þeim inn í tölvuna... búhúhú. Þetta er ókosturinn við að eiga of stórt minniskort. Sem betur fer tók Beta nokkrar myndir úti og skal ég setja nokkrar inn og ef einhver kann að setja inn video-klippur inn á svona blogg þá má sá og hinn sami kenna okkur :) svo þið getið nú heyrt Úlf blaðra út í eitt.
Það verður sem sagt ekki mikið um það að ég geti sett myndir inn á næstunni, allavegana ekki fyrr en við fáum nýja vél út úr tryggingunum...

2 Comments:

  • At 22:52, Blogger Hugrún Sif said…

    Hæ litla fjölskylda

    Inga Sólrún var að benda mér á þessa síðu og gaman að geta fylgst með litla frænda þótt ég sé nú ekki farin að sjá hann ennþá :)

    Kveðja,
    Hugrún Sif

     
  • At 12:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Þið eruð alveg óheppnasta fól hvað varðar myndavélar og myndir sem í henni eru......
    Hvenær skildi maður ná að sjá myndir hjá ykkur sem eru úr frí sem þið farið í.

     

Skrifa ummæli

<< Home