Ævintýri Úlfs

þriðjudagur, september 26, 2006

Fyrsta ferðalagið

Jæja loksins loksins tekst mér að koma með smá fréttir. Núna erum við stödd í Luxembourg hjá Betu, Bigga, Inga Rúnari og Birgittu Sóley. Ferðalagið gekk rosalega vel og Úlfur svaf bæði í flugtaki og lendingu. Það er búið að vera rosa fjör og Úlfur litli er voðalega hrifinn af frændsystkinum sínum sem gera allt fyrir hann :) Þó svo hann sé bara 11 vikna er hann núna búinn að koma til 3 landa, Luxembourg, Frakklands og Þýskalands... allt á einum degi hehe. Núna er Halldór í Kazakhstan að draga fyrir Bigga og söknum við hans voða mikið. Á meðan hann er að svitna undan golfpokanum erum við bara að dúlla okkur í göngutúrum og búðarápi. Hérna er mjög fallegt og bærinn sem þau búa í er æðislegur. Ingi Rúnar og Birgitta eru búinn að vera rosalega dugleg að passa Úlf litla og tístir hann bara og hlær að þeim.

Ingi, Halldór og Úlfur að gretta sig


Aðal töffararnir
P.S. Set fleiri myndir inn seinna og Beta ætlar að setja inná barnaland síðuna, því það tekur alltof langan tíma að koma þessu inn (lykilorðið er leifur)

3 Comments:

  • At 12:58, Anonymous Nafnlaus said…

    Fjör maður! Úlfurinn strax farinn að kanna heiminn. Það verður spennandi að fylgjast með þeim félögum í Kazakhstan. Bið að heilsa öllum.

    kv,
    Elli

     
  • At 16:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Ji hvað sumir eru bara alveg eins og pabbi sinn....
    Finnst nú bara alveg sjálfsagt að þið kíkið á okkur til eyja, miðað við allt ferðalagið sem þið eruð búin að fara í núna.
    Þá er bara ekkert mál að koma til eyja. Verðið líka að koma og kíkja á nýja húsið okkar
    Kv. úr eyjum
    Kolla og Co.

     
  • At 21:16, Anonymous Nafnlaus said…

    Gaman gaman, Úlfur bara að sigra heiminn strax á unga aldri.

    Kvedja frá Montreal,

    Pétur og Dóra

     

Skrifa ummæli

<< Home