Skal ég sprauta honum?
Jæja nú er Úlfur búinn að fara í 3 mánaða skoðunina og fá fyrstu sprautuna. Hann spriklaði svo mikið þegar ljósmóðirin var að vigta hann að það tók 5 min fyrir vigtina að ákveða sig, en hann er orðinn 66 cm og 7.5 kg... úff hvað hann stækkar! Læknirinn hafði miklar áhyggjur um það að valda honum ekki "trauma" með sprautinni og eyrnaskoðuninni en setti svo bara upp stór augu þegar Úlfur brosti út að eyrum þegar kom að sprautunni (he he he). Greinilega búið að væla og grenja á greyið lækninn allan daginn þannig hann var voða feginn að fá glaðann strák í heimsókn. Eftir skoðunina fórum við með Hönnu Cörlu langömmu í heimsókn til Eyju litlu frænku sem er 1 mánaða. Það er varla hægt að kalla hana litlu frænku því hún er næstum jafn löng og Úlfur :) Við fengum kaffi og bakkelsi og fórum svo að hitta Stínu ömmu og Kolfinnu frænku og svo um kvöldið fórum við í heimsókn til Önnu Lilju og Ella að kíkja í fyrsta skiptið á litla prinsinn þeirra. Hann er algjört krútt, alveg eins og pabbi sinn en með nebbann hennar mömmu sinnar :) Hann fékk smá gulu og er því ein og hann sé nýkominn frá Kanarí, voða brúnn og sætur. Halldór vildi nú ekki viðurkenna að muna eftir Úlfi svona litlum en hann var nú samt minni en litli Tani hehe.



3 Comments:
At 12:34,
Halldór said…
Ég er farinn að halda að enginn skoði síðuna okkar, það nennir enginn að segja hæ... búhú
At 22:37,
Nafnlaus said…
Hæ elsku dúllurnar mínar :) hehe ég kíki sko reglulega á síðuna ykkar. Það er svo gaman að fá að fylgjast með ykkur og litla frænda. Við verðum nú að fara að kíkja í heimsókn til ykkar við tækifæri. Orðið allt of langt síðan við hittumst. Og vá hvað Úlfur litli stækkar hratt, tíminn er líka svo fljótur að líða.
Kossar og knús
Ásdís og Daníel
At 22:43,
Nafnlaus said…
ohh gleymdi.... Til hamingju með afmælið í gær elsku Halldór frændi :D
Skrifa ummæli
<< Home