Fimmtudagsfjör
Jæja dagurinn er varla byrjaður og Úlfur er nú þegar búinn að kúka upp á bak 2 sinnum og æla sig allan út 1 sinni (og þá er ég ekki að taka með litlu ælin sem koma inn á milli). Hann vaknaði ekki fyrr en kl 11 í morgun en hefur á þessum stutta tíma náð að skipta um föt 3 sinnum og er nú sofnaður í sófanum knúsandi nýju lambhúshúfuna sína. Til að toppa daginn fór Halldór í vinnuna í morgun með báðar kerrurnar í bílnum og báða svefnpokana þannig Úlfur getur lítið sofið úti í dag... nú er bara að bíða og sjá hvað fleira skemmtilegt bíður okkar handan við hornið!

2 Comments:
At 17:02,
Erla Perla said…
Hehehe, hvað er lambhúshúfa?? Ertu að meina það sem kallast lambhúshetta heima hjá mér?
erla perla
At 21:21,
Nafnlaus said…
Hæ, hæ litli sæti Úlfur Ægir.
Ég kíki reglulega hér inn til að fá fréttir af þér. Mér líst ekkert á hvað þú stækkar hratt. Þú verður líklega byrjaður í skóla áður en ég fæ að sjá þig.
Hafðu það gott og kysstu pabba og mömmu frá mér.
Kveðja úr sveitinni.
Þórunn
Skrifa ummæli
<< Home