Ævintýri Úlfs

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Menningarnótt

Fyrsta menningarnóttin er liðin hjá og Úlfur skemmti sér konunglega. Amma, afi og Kolfinna komu í heimsókn og voru samferða okkur niður í bæ, Úlfur var hress og neitaði að sofa mikið. Hann reyndi einu sinni að yfirgnæfa fagnaðarhöldin en mistókst hraparlega og ákvað því bara að sofna í staðinn. Torfærukerran kom sér vel í bænum þó svo við lentum í nokkrum umferðarteppum. Kolfinna og Nonni afi voru við stýrið og keyrðu Úlf zikk zakk þvers og kruss um miðbæinn. Enduðum fyrri part dagsins á því að borða tapas á Angelos, maturinn var nú ekki upp á marga fiska enda fjöldaframleiddur og bragðlaus. Við löbbuðum heim um 7 leitið og hvíldum lúin bein þar til Elli og Anna Lilja komu í heimsókn og fórum við öll saman í bæinn um kvöldið að hlusta á tónleikana. Úlfur fékk að prufa að vera í magapoka í fyrsta skiptið og líkaði vel að hanga framan á mömmu sinni allt kvöldið. Við hittum Bigga, Betu og fylgifiska niðrá Austurvelli og voru Ingi Rúnar og Birgitta í essinu sínu hlaupandi út um allt. Allt var svo spennandi að Úlfur reyndi að halda sér vakandi eins lengi og hann gat en ljúfir tónar Mezzoforte náðu yfirhöndinn og náði hann því að hlaða batteríin fyrir flugeldasýninguna sem vöktu mikla lukku og blikkaði hann varla augunum af undrun. Við mæðginin skildum svo Halldór eftir niðrí bæ og röltum heim, Úlfur var enn í svo miklu stuði að það endaði með heimsókn til löngu og langa á efri hæðinni þeim til mikillar gleði.




Kaffi og bjórpása á q bar

Loksins náði Úlfur að sofna

Á leið niðrí bæ

Úlfi líkaði vel að hanga á mömmu sinni

Ingi Rúnar og Birgitta með sleikjó

Ingi Rúnar töffari

Úlfur alveg búinn á því

Beta, Agga og litli hvíti álfurinn

Litla fjölskyldan að horfa á flugeldana

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home