Ævintýri Úlfs

þriðjudagur, október 31, 2006

Í fréttum er þetta helst...

Jæja nú gengur þetta ekki lengur, bráðum munu koma myndir, það er alveg hræðilegt að vera svona myndavélalaus. Allir eru annars voða hressir hér á bæ, Úlfur er aðeins farinn að skilja "viltu koma" og baðar þá út öllum örmum og þenur út brjóstkassann he he og það sama gildir ef honum leiðist eitthvað þá er bara hóstað og hendurnar út í loftið, algjör gemlingur. Það besta sem hann fær þessa dagana eru puttar og ef hann fær færi á því er þeim troðið uppí munn og kjammsað og urrað þar til slefið streymir í stríðum straumum, mmm... Hann er líka farinn að vesenast meira á nóttunni og hefur síðustu morgna vaknað næstum þver í rúmminu sem nota bene er ekki alveg hægt, held að það sé kominn tími til að skella bólstrun á rúmmið áður en hann fer að taka 360 (verður eflaust efnilegur á snjóbretti með pésa og dóru). Jæja Úlfur er ekki að nenna horfa á mig blogga og vill bara aðeins smakka skjáinn, reynum að setja myndir og myndbönd inn bráðum :)

1 Comments:

  • At 11:22, Blogger Halldór said…

    Vei vei gaman að heyra loksins í afríku afanum, gott að allt gengur vel og þú getur farið að fylgjast með :)

    kv agga og Úlfur

     

Skrifa ummæli

<< Home