Verslunarmannahelgin
Erum búinn að vera alltof löt við að setja inn nýjar fréttir en ætlum að reyna bæta úr því :)
Um verslunarmannahelgina var litla fjölskyldan í fyrsta skipti ekki saman, Halldór þurfti að vinna í bænum og mæðginin fóru í heimsókn til löngu og langa í Borganes. Langi og langa voru voða glöð að fá litla Úlf í heimsókn og var þetta í fyrsta skipti sem hann fer í svona langt ferðalag. Úlfur svaf alla leiðina í bílnum og var voða stilltur alla helgina enda í góðu yfirlæti. Maturinn flæddi að vanda og Agga borðaði út í eitt... sem þýddi bara eitt, meiri mjólk fyrir litla. Úlfur fékk að fara í fyrsta skipti í stórt bað og þótti rosa gaman en annars var hann mest í því að heilla löngu og langa upp úr skónum. Við mæðginin söknuðum pabba auðvitað voðalega en hringdum reglulega í hann svo að Úlfur gæti urrað smá í símann. Addi frændi (bróðir Nonna afa) kom með fjölskylduna sína í heimsókn á sunnudeginum og borðuðum við öll saman um kvöldið og svo kom amma Stína á mánudeginum og sótti okkur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home