Miðvikudagur
Byrjuðum daginn í rólegheitum og lilli svaf til hádegis með nokkrum mjólkurpásum auðvitað. Amma Stína og Afi Nonni tilkynntu að þau væru á leið til Búlgaríu á föstudaginn til að flýja frónið og buðu okkur í mat um kvöldið. Lilli sofnaði á leiðinni og neitaði að vakna fyrr en desertinn var borinn fram. Um kvöldið komu svo Birna og Bergur frændi í heimsókn og Sigga úr eyjum til ömmu og afa og náðu allir að kíkja á nýjasta erfingjann. Um kvöldið kom lilli svo mömmu og pabba á óvart með að reyna leika sér að kringlu, reyndi mikið að lemja aðeins í hana og grípa :)













0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home