Ævintýri Úlfs

laugardagur, júlí 08, 2006

Fótboltaveislan að enda

Nú fer að líða að lokum HM 2006 og ætlum við feðgarnir því að horfa á tvo síðustu leikina saman. Þjóðverjar og Portúgalir spila í kvöld og ætti það að vera ágætis leikur ef liðin eru ekki enn í fýlu yfir að tapa undanúrslitaleikjum sínum. Auðvitað heldur maður með Þýskalandi sem eru búnir að koma öllum á óvart með aukinni áherslu á sóknarbolta.
Á sunnudaginn er svo úrslitaleikurinn sjálfur, Frakkland - Ítalía. Auðvitað þýðir ekkert annað en að styðja sína menn (Frakkana) og ætlum við feðgarnir að klæðast frönskum sjóliðabolum og styðja okkar menn til dáða... Allez les bleus!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home