Ævintýri Úlfs

föstudagur, júlí 07, 2006

Dagur 4

Allir sváfu vel í nótt og voru vel hvíldir í morgun. Lilli var meira að segja búinn að baka fyrir pabba sinn þegar hann fór á fætur.
Andrea kíkti í morgun en gat ekki staldrað lengi við því hún átti tíma í klippingu og var að farast úr spenningi þar sem hún hefur ekki farið í klippingu í 20 ár að hennar sögn.


Kristín langalangamma að skoða lilla

Amma Stína kom svo með Kristínu langalangömmu í heimsókn í hádeginu. Lilli er 25. afkomandi langalöngu og var að hún auðvitað voða stolt. Hún hafði mikið dálæti á nefi lilla og þótti einkar mikið til þess koma og sagðist nú kannast við ýmiss andlitseinkenni... þannig að ekki öll von úti enn um að hann líkist mömmu sinni smá :)

3 Comments:

  • At 14:01, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju Agga og Halldór! Hann er ekkert smá mikið krútt!!! :)
    Ég hlakka til að kíkja í heimsókn í ágúst.

    kveðja,
    Andri

     
  • At 14:22, Blogger Halldora said…

    Inninlega til hamingju með þennan fallega dreng. Ég vildi að ég væri á landinu til að kíkja á hann og ykkur forledrana, sé ykkur sennilega um jólin.

    Til hamingju,

    Petur í Montreal

     
  • At 15:03, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju! Hann er ekkert smá flottur og ríkur að eiga allar þessar ömmur, afa, langömmur, langafa og m.a.s. langalangömmu! Gott að heyra hvað allt gengur vel. Ég væri alveg rosalega til í að geta kíkt á hann, vonandi verður það fyrr en seinna.

    Halldóra (hin eina sanna, ekki þessi fyrir ofan...)

     

Skrifa ummæli

<< Home