Ævintýri Úlfs

föstudagur, júlí 07, 2006

Dagur 2 - Heima á Ásvallagötu

Þegar heim var komið streymdu að gestirnir til að skoða gripinn. Margt hafði breyst þann 4. júlí. Afar og ömmur voru skyndilega langafar og langömmur og mömmur og pabbar orðin að ömmum og öfum í fyrsta sinn. Móður- og föðursystur urðu til og auðvitað vorum við stolt að vera orðin mamma og pabbi.

Þennan dag hitti Lilli hvorki meira né minna en tvær langömmur, tvo langafa, eina ömmu og tvo afa. Hanna Carla og Geir (langamma og langafi úr Borgarnesi) kíktu í heimsókn og voru enn að átta sig á nafnbótinni. Hjalli og Kolla (langamma og langafi á Ásvallagötu) kíktu líka en þurftu ekki að leggja á sig jafn mikið ferðalag (u.þ.b. 3 metrar beint niður). Stína amma og Nonni afi kíktu svo með Kolfinnu systur Öggu. Villi frændi (Hjálmarsson) kom líka í kjallarann og útnefndi drenginn nýjasta hirðfífl fjölskyldunnar og gaf honum um leið glæsilegt höfuðfat með bjöllum.
Dóri afi kíkti í heimsókn og var sáttur við fimmta afabarnið sitt, Stella amma komst ekki í þetta skiptið en við kíkjum í heimsókn með Lillann við fyrsta tækifæri.

Kolfinna móðursystir að prufa litla frænda

Hanna Carla langamma

Amma Stína, Villi frændi og Geiri langafi

Ef ég er að gleyma einhverjum þá var það ekki viljandi því klukkan er orðin margt og heilinn minn er farinn að sofa. Ég set inn einhverjar myndir á morgun, ef þú ert ekki á neinni mynd hér á síðunni ættirðu kannski að fara að kíkja í heimsókn :)


Hah... vissi það, ég gleymdi Óttari.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home