Ævintýri Úlfs

sunnudagur, júlí 09, 2006

Allt að gerast

Á föstudaginn fékk ég (Halldór) að fara út og Agga var ein heima með strákinn. Ég fékk mér göngutúr með Ella niður í bæ til að reyna að finna gott kaffi en hvert sem við fórum fengum við sama svar: "Við opnum ekki fyrr en kl 11.00". Ég vorkenni túristunum hér á Íslandi, þeir geta ekki einu sinni fengið sér kaffi og morgunmat fyrr en kl 11.00... algjör skandall.
Óttar og Júlíus sonur hans kíktu á pallinn í pulsur og kók, áður en langt var um liðið bættust Freydís og Jónas kærastinn hennar í hópinn og skelltum við því bara fleiri pulsum á grillið.

Óttar, Jónas og Freydís í góðum fíling

Stoltir foreldrar að passa strákinn sinn

Vafinn í Puma teppið sitt

Í nýja vagninum

Vælusvipirnir okkar

Erla kíkti svo aðeins við og stuttu seinna bættust Elli og Anna Lilja í hópinn. Þegar á leið kvöldið var Agga farin að þreytast þannig að ég ákvað að leigja fyrir hana DVD mynd og við Elli spiluðum Playstation... Agga á í raun tvo syni, annar þeirra er meira að segja eldri en hún :)

Erla og litli

Í peysunni sem mamma hans prjónaði

Halló allir!

Á Laugardaginn komu gestir í tonnatali líkt og fyrri dagana. Júlli og Heiða litu inn í smá stund með sína krakka, Þórdísi og Kára. Erna Sif og Hlynur komu líka og fengu súkkulaðiköku. Hlynur virtist nokkuð viss um að þau ætluðu að fara að búa til kríli sjálf... "allavega byrja að æfa okkur" sagði hann orðrétt, heyrðist mér.
Óttar og Stína kíktu svo við á leiðinni út á lífið og voru í rosalegu stuði.

Hlynur og Erna

Stína og Óttar að skoða

Eftir að gestirnir voru farnir var komið að okkur að fara í heimsókn. Við fórum nú ekki mjög langt, heldur bara upp tröppurnar til Hjalla langafa og Kollu langömmu þar sem við fengum grillað lambalæri og alla stælana. Þetta var tilvalið tækifæri til að prófa labbrabb tækið hans og skildum við hann því eftir sofandi niðri og hlustuðum eftir honum í græjunni.
Kolla og Hjalli buðu okkur uppá Tommasi Amarone með matnum og ég held að Agga hafi verið frekar sár að hafa ekki mátt smakka uppáhalds rauðvínið sitt með matnum.


Kolfinna var frekar feimin við frænda sinn

Kolla langamma, Hjalli langafi og Stína amma

Amarone-ið langþráða

Stína amma að reyna að láta strákinn ropa

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home