Ævintýri Úlfs

miðvikudagur, júlí 12, 2006

Fyrsti mánudagurinn

Við fórum með lilla í skoðun á Barnaspítala Hringsins og kom það allt saman vel út. Hann var búinn að þyngjast um 150 grömm og var læknirinn ánægður með það. Svo kíktum við í heimsókn til Betu ömmu í Goðatúni og þar hittum við Önnu, Ellu og Arnór systkyni ömmu. Að vanda voru öll borð full af kræsingum og fengum við ekki að fara út fyrr en allir voru saddir.

Algjör töffari í fötunum sem Stína amma prjónaði

Kominn í bílstólinn í fyrsta sinn og tilbúinn í ferðalag

Beta amma sátt við strákinn sinn

Beta amma og Anna frænka

Þegar heim var komið kíktu Jóhanna og Andrea í heimsókn. Hann entist ekki lengi eftir ferðalag dagsins og sofnaði fljótt frá gestunum.

Jóhanna með lilla

Andrea og Elísabet Úa dóttir hennar

Byrjaður að sjúga hendina á sér, þá er hann svangur

Ekkert pláss fyrir mömmu í rúminu :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home