Ævintýri Úlfs

sunnudagur, júlí 09, 2006

Sunnudagur... Frakkland - Ítalía

Nú er spennan í hámarki og við feðgarnir erum að klæða okkur í Frakklands bolina okkar. Hann er búinn að sofa í næstum þrjá tíma og því er ljóst að hann mun hafa næga orku til að hvetja okkar menn í leiknum. Stína amma hans er búin að sauma pínkulítinn franskan sjóliðabol úr stærri bol sem ég keypti notaðan í Frakklandi fyrir 6 árum. Þetta er ekta sjóliðabolur og hefur eflaust séð sinn skerf af ævintýrum í fjarlægum höfnum, en eftir að hafa sett hann í klór og þvegið hann milljón sinnum hlýtur hann nú að vera laus við alla smitsjúkdóma.

Ný bleia og nýr bolur fyrir leikinn

Tilbúnir fyrir leikinn

Vítaspyrnan dæmd...

... og Zidane skorar af öryggi

Of mikið stress fyrir svona lítinn strák

Við þurfum ekkert að fara nánar út í það hvernig leikurinn endaði en við skulum bara segja að Frakkarnir hafi kúkað upp á bak.

En sá litli gerði betur og kúkaði upp á vegg!

4 Comments:

  • At 18:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Mikil synd að ykkar (okkar) menn skyldu tapa, þegar við keyrðum inn í Montreal var ekki hægt að komast hjá því að sjá að ítalarnir unnu (þeir voru allir keyrandi um götur, hálf hangandi útúr bílunum, flautandi með ítalska fánann hangandi útum alla glugga). Gott að vita að lilli er farinn að taka sjálfstæðar ákvarðanir og halda með rétta liðinu, enda getur hann ekki annað gert þar sem faðir hans og Sylvain Wiltord landsliðsmaður Frakka eru góðir vinir síðan á Frakklandsdögum þess fyrrnefnda (þegar hann tók upp á því að kaupa gamlan notaðan sjóliðabol sem nú þegar hefur skipað sér stóran sess í vinahópnum og verður vafalaust mikið notaður í framtíðinni af honum lilla). Gaman að lesa um ævintýri ykkar fjölskyldunnar

    Pétur (ekki Halldóra)

  • At 21:06, Anonymous Nafnlaus said…

    Vá, hvað þessi maður á í miklum vandræðum með að kommenta, það er ekki nema von að hann reyni að gera það undir fölsku nafni...

    Mig langaði bara til að hæla ykkur fyrir að vera svona dugleg að skrifa og setja inn myndir. Það er æðislega gaman að geta fylgst svona vel með ykkur og Lilli er algert bjútí.

  • At 15:34, Blogger Halldór said…

    Alltaf gaman að sjá að síðan er að gera gagn og þá sérstaklega fyrir þá sem eru í útlöndum og komast ekki í heimsókn. Við hlökkum mikið til að fá ykkur til landsins og í heimsók.

Skrifa ummæli

<< Home