Ævintýri Úlfs

föstudagur, júlí 07, 2006

Dagur 3 - Heima á Ásvallagötu

Mig langar að byrja á því að óska Betu ömmu (langömmu Lilla) innilega til hamingju með 70 ára afmælið, ég kíki í heimsókn við fyrsta tækifæri.

Sá litli svaf vel í nótt og var ekki til vandræða frekar en fyrri daginn. Það er ótrúlegt að ég (Pabbi) hafi kviðið fyrir að skipta á kúkableium... þetta er svo auðvelt og skemmtilegt að ég fæ eflaust aldrei leið á þessu *hóst hóst*

Við fengum eitthvað af gestum í dag og buðum upp á súkkulaðiköku og vínarbrauð (þökk sé Stínu ömmu og Nonna afa).

Ási vinur kom fyrstur, hann kíkti fyrir vaktina sína

Svo kom Inga amma og gaf mér (Halldóri) albúm með myndum af mér frá því ég var pínulítill og til fermingaaldurs en sem betur fer gleymdist að setja fermingamyndina í albúmið :) Við tókum eftir því að Lilli er mjög líkur mér, fyrir utan putta, táslur og fleira sem Agga á skuldlaust. Við gleymdum að taka myndir af Ingu ömmu en það verður vonandi bara til þess að hún kíki aftur á morgun.

Stína amma að halda á stráknum sínum

Nonni Afi með guttann

Aðeins að æfa fýlusvipinn okkar

Mamma og Lilli

Erla vinkona

Anna Lilja (hún og Elli eiga von á sér í október)

Elli töffari

Ljósmóðirin kíkti við að vanda og sagði að allt væri með felldu og að "hann væri ótrúlega duglegur að drekka og ætti eftir að verða stór og sterkur eins og pabbinn sem er einn af sterkustu mönnum á landinu", ég hef þetta orðrétt eftir henni... minnir mig.

1 Comments:

  • At 11:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Elsku Agga og Halldór innilega til hamingju með þennan yndislega prins:) Hann er bara æði (enda ekki við öðru að búast!!)
    Nú vildi ég að ég væri í Rkv til að geta kíkt strax á ykkur!! En planið er að koma 24 júlí (bara of langt þangað til)
    Hafið það gott og njótið nýja hlutverksins í botn
    Kv. Anna Rós, Palli og Almar Benedikt

     

Skrifa ummæli

<< Home