Ævintýri Úlfs

föstudagur, apríl 06, 2007

lúx - seinni partur

Hérna koma nokkrar myndir í viðbót frá lúx :) Við skemmtum okkur voðavel með Betu og Bigga en Beta þurfti að fara til Íslands á miðvikudagsnóttina og þá vorum við aftur ein í koti. Um nóttina vaknaði Birgitta og Ingi og skriðu uppí rúm til okkar Úlfs... úff það var nú meira fjörið að vera með 3 börn uppí sem eru algjörir ormar. Úlfur lá þver í rúmminu með lappirnar í mig, Birgitta snéri sér öfugt og tróð sér á milli lappanna minna og Ingi tók afturábak kollnís, mig langaði mest að ná í myndavél ha ha ha. Við skemmtum okkur konunglega í ýmsum leikjum og "ferðuðumst" í rúmminu um allan heim :) Ingi Rúnar og Birgitta ákváðu að Úlfur skildi vera litli bróðir þeirra og Birgitta stakk uppá því að ég skildi bara skilja hann eftir og hún og mamma hennar skildu passa hann ha ha, algjör krútt! Ferðin heim gekk ótrúlega vel og Úlfur var voða góður í flugvélunum. Hann var nú samt orðinn annsi þreyttur í London og fólk starði á okkur mæðginin drekkandi Starbucks ha ha. Reyndar var Úlfur að drekka þunnan graut en þetta leið frekar dúbeus út :) Hann steinsofnaði svo í vélinni en vaknaði þegar við lentum á klakanum til að knúsa pabba sinn sem hann var ofsalega glaður að sjá aftur.

Mikið fjör að spjalla við Bigga

Bleika Ralp Lauren gengið

Naughty, naughty

Birgitta í miklu fjöru

Litlu krúttin í sturtu saman

Litla púpan í fullu fjöri

Jó jó

Prinsessan að pósa :)

Franskur töffari í fötunum sem Beta gaf honum

Alveg að sofna á flugvellinum í London

Hmmm Starbucks...

Best að smakka þetta gúmmulaði

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home