Ævintýri Úlfs

mánudagur, desember 04, 2006

Bjarki Heiðar Erlingson

Elli og Anna Lilja voru að skýra litla "Tana" á 1sta í aðventu. Fjölskyldan mætti galvösk í Landakotskirkju og fór í fyrsta skipti í kaþólska skírn sem var mjög skemmtileg lífsreynsla, mun meiri þáttaka í skírninni og hver krókur og kimi af kirkjunni nýttur. Úlfur var mjög afslappaður og svaf í gegnum alla athöfnina við óminn í kirkjunni. Litli Bjarki Heiðar er orðinn rosa stór og þurfti Elli að hafa sig allan við að halda á litla pjakknum í gegnum athöfnina en honum fannst þetta álíka þægilegt og Úlfi og svaf :) Eftir athöfnina var haldið á Bollagötu og troðið í sig hinum ýmsu kræsingum. Úlfur var í stuði og skemmti sér best innan um vinkonur Önnu Lilju sem hópuðust að honum til að heilsa uppá litla Úlfinn. Hann hitti líka Emmu Lilju (dóttur Dóra, bróður Önnu Lilju) sem er 8 mánaða og þótti þeim hvort annað voðalega spennandi, skríktu og hjöluðu (meira kannski urr og rumur í Úlfi). Verst að geta ekki náð mynd þegar þau voru að reyna ná í hvort annað :) Enn og aftur til hamingju með þetta fallega nafn Bjarki Heiðar og sjáumst án efa fljótlega.
Dagurinn endaði svo með jólakökubakstri hjá Höllu þar sem Úlfur náði að reka hausinn í lítinn leikfangabíl og fá fyrstu kúluna en skemmtilegast þótti honum að sjá lítinn páfagauk og gerði ekkert annað en að stara og slefa á meðan greyið páfagaukurinn skríti og flaug út um allt búr!

Töffaralingurinn hann Bjarki Heiðar :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home