Bústaðaferð með eyjapæjum
Úlfur fékk að fara með eyjapæjunum í bústaðinn um síðustu helgi og skemmti sér konunglega :) Við byrjuðum daginn á því að sofa yfir okkkur og sóttum Freydísi og Eyrúnu á kagganum um hádegi og skutluðum dóti til Davíðs á spítalann á leið okkar til Önnu Rósar. Þeir sem kunna að telja sjá að núna eru komnir 5 farþegar í bílinn og hann ætti að vera fullur en neeeeeiii... heldurðu ekki að stationin lumi á 2 sætum í skottinu þannig þegar við vorum búnar að fara í Bónus og kaupa nammi og óhollustu fyrir háar upphæðir brunuðum við til Selfossar þar sem Aníta "hin danska" skellti sér í bílinn. Þá kom ítið annað til greina en að troða Freydísi í skottið og stafla henni innan um mat og sundfatnað! Komum í bústðinn og veðrið var geggjað, ekkert annað hægt að gera en fylla pottinn, spila og dreypa á rauðvíni. Fórum í pottinn 3svar sinnum á innan við sólarhring og þótti það góður árángur. Úlfur var alveg að fíla það að liggja í pottinum með 4 skvísum og 2 litlum bumbubúum. Auðvitað var dekrað of mikið við Úlf og hann læri að vera frekur og urrar nú hátt þar til hann verður rauður í framann... frekar fyndið! Hann fékk að sofa á milli Eyrúnar og mömmu sinnar og fékk að drekka milli þess sem Eyrún fór á klósettið :) Átum á okkur gat og mér var orðið illt í maganum af nammiáti þegar heim var komið. Takk æðislega fyrir frábæra helgi stelpur og núna er bara að gera þetta að árlegum viðburði... mæðraorlof (nú er pressan komin á þig Freydís he he).
Jæja Freydís komin í skottið














1 Comments:
At 22:09,
Nafnlaus said…
Vá hvað þetta var skemmtileg helgi. Takk sömuleiðis fyrir hana :D Ég þarf líka að koma myndunum frá mér inn á netið svo þið getið skoðað ;) og ekki gleima að senda okkur reikningsnúmerið þitt svo það sé hægt að leggja inn á þig fyrir benzininu
Jólakveður frá Köben
Skrifa ummæli
<< Home