Ævintýri Úlfs

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Flutningar

Kapallinn er fundinn! Nú ætla ég að reyna vera dugleg og skrifa niður það sem hefur verið að gerast síðustu vikur :) Til að byrja með voru það flutningarnir miklu, amma Stína segir að núna sé hún búinn með kvótann að flytja ein og segist ætla láta Nonna afa sjá um næstu flutninga. Úlfur var voða duglegur að sitja í vöggunni sinni og leika á meðan amma reyndi að kremja öggu undir sófanum og eyðileggja ofna :) Ína ömmusystir kom með gömlu beneton peysuna sem agga átti þegar hún var lítil og Úlfur tók sig vel út í henni, annars kom það í ljós að afi Nonni hafð potað í linsuna í myndavélinni og því eru fyrstu myndirnar soldið blurry í miðjunni he he.

Amma Stína að flytja og færa
Með fiskinn í vélavinnuverkamannasamfellunni
Að lesa bók í gömlu peysunni hannar mömmu sinnar
Amma Stína og Úlfur að gantast
Voða gaman að fljúga...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home