Ævintýri Úlfs

sunnudagur, júlí 16, 2006

Kúkað uppá bak

Í dag var merkisdagur, lilla tókst að ná enn einu kúka-takmarkinu og kúka alla leið uppá bak... til hamingju! Annars var heimilið undirlagt í dag og allir veggir útboraðir vegna þess að pabbi og Villi frændi voru að leggja snúrur fyrir örbylgjuloftnetið og netið, það var ekki að spyrja að því en auðvitað svaf lilli af sér öll lætin og lét sér fátt um finnast að sveittir karlmenn væru að vesenast út um allt með bora og límbyssur á lofti. Eftir framkvæmdirnar kíktu Haukur og Bryndís í heimsókn og eftir að Bryndís fékk að prufa hlutverkið tilkynnti hún að væntanlegar barneignir yrðu 2013, gott að allt er vel planað. Tobba frænka mætti svo með kökur handa liðinu og lofaði nú að reyna kíkja oftar í heimsókn þar sem hún er búinn að vera á leiðinni í heimsókn á Ásvallagötuna síðastliðið ár eða svo.

Ekki skil ég hvernig þetta er hægt...

Bryndís að prufa

Lilli alsæll hjá Tobbu frænku

1 Comments:

  • At 07:53, Anonymous Nafnlaus said…

    hallo this is Bulgaria calling :-)
    her er blida svolitill vindur en fint samt. klassisk solarstrond ad ollu leiti. Kolfinna rembist vid ad verda brun en mamma ber svo vel a hana ad thad gengur of haegt ad sumra mati. A morgun aelar hun i sjoraeningjaleik og kannski tekst henni ad plata afa gamla a sjokott - hver veit! Kvedjur fra ollum og segid Sponna ad haetta ad dreifa brosinu fina thangad til vid komum heim :o)

     

Skrifa ummæli

<< Home