Sumar sumar sumar
Við erum búinn að vera svo upptekinn að undanförnu að það gleymdist alveg að blogga um ævintýri litla úlfsins okkar. Við erum búinn að bralla ýmislegt og Úlfur er orðinn voða stór strákur. Hann er farinn að blaðra mikið og er í miklu sjálfstæðiskasti þessa dagana, labbar út um allt og þykist ráða öllu :)
Við fórum í sumarbústaðinn hjá fjölskyldunni hans Ella og skemmtum okkur konunglega í góðra vina hópi. Krakkarnir voru í essinu sínu og Júlíus, strákurinn þeirra Stínu og Óttars, var ómetanlegur á morgnanna og lék sér við Úlf í marga tíma. Úlfur fríkaði alveg út í náttúrunni og hljóp út um allt - alla daga, allan daginn!
Stóru strákarnir voru hins vegar í vígahug og fóru á geitungaveiðar niður við Þingvallavatn. Öll göt á fötunum voru teipuð saman og útbúin voru mikil og stór banatól :) Útkoman var eitt vel brennt geitungabú og 4 strákar í adrenalínsjokki. Við borðuðum góðan mat og skemmtum okkur á bát, sjóskíðum og úti í náttúrunni og Úlfur náði að prófa bakpokasætið sem hann fékk frá ömmu Stínu og afa Nonna - þvílíkt fjör!

2 Comments:
At 18:42,
Nafnlaus said…
Gaman að heyra fréttir frá ykkur:) Ætliði svo ekki að fara að kíkja aðeins í heimsókn til Eyja??
Vonandi sjáumst við fljótlega
Kv. Anna Rós og co..
At 12:40,
Nafnlaus said…
Hæhæ, var einmitt að hugsa um barnahitting í september með öll þessi kríli og þegar ég sá kveðjuna frá ykkur þá er það ákveðið. Sendi upplýsingar fljótlega :)
kv, Magga
Skrifa ummæli
<< Home