Í pössun hjá afa og ömmu í sveitinni
Við foreldrarnir skelltum okkur í 5 daga til Washington á árshátíð Fítons og greyið Úlfur varð eftir á klakanum. Hann rétt náði að verða góður af eyrnabólgu áður en við fórum útá völl og var bara mjög kátur með það að fara í heimsókn til ömmu og afa. Hann hresstist óðflluga við sveitaloftið þegar brunað var uppí bústað og fór að smíða og brasa með afa Nonna. Hann og Yrja voru orðnir mestu mátar og voru að mikið í því að kuðlast saman og Úlfur farinn að stelast til að gefa henni af matnum sínum, ömmu Stínu til mikillar "gleði".

1 Comments:
At 11:49,
Nafnlaus said…
Vá, hvað maður er sætur. Það hefur greinilega verið dúllað við þig í bústaðnum með ömmu og afa í Geirakoti.
Hlakka til að sjá þig.
kveðja,
Amma Inga
Skrifa ummæli
<< Home