1 árs - uppfært
Jæja nú er litlu úlfurinn orðinn 1 árs og mál til komið að halda fyrstu afmælisveisluna. Hann vaknaði voða kátur í morgun, rétti okkur snuðið og fór að babbla og babbla, skemmti sér konunglega í sturtu og fékk cheerios með mjólk eins og stór strákur :) Hann var spenntur að fara hitta krakkana hjá dagmömmunni og labbaði strax inn og fór að leika... rétt náði að vinka smá bless. Við sóttum hann snemma til dagmömmunnar og fórum heim að baka köku.
Í fyrra afmælinu (4. júlí) grilluðum við hamborgara og fengum okkur gómsæta súkkulaðiköku. Fjöldi fólks kom til að óska drengnum til hamingju og skemmtu allir sér mjög vel.
Daginn eftir kom svo enn fleira fólk að hitta strákinn sinn og gæða sér á pönnukökum.
Í fyrra afmælinu (4. júlí) grilluðum við hamborgara og fengum okkur gómsæta súkkulaðiköku. Fjöldi fólks kom til að óska drengnum til hamingju og skemmtu allir sér mjög vel.
Daginn eftir kom svo enn fleira fólk að hitta strákinn sinn og gæða sér á pönnukökum.














7 Comments:
At 12:35,
Nafnlaus said…
Verð með í afmælinu í anda!!
Knús og kossar!
Kv. Kolla og Co.
At 12:56,
Nafnlaus said…
Til hamingju dude!
Bjarki, Ósk og ÓB
At 13:06,
Nafnlaus said…
Enn og aftur til hamingju með eins árs afmælið elsku litli Úlfur. Svooo stutt síðan þú fæddist.
Megi sólin láta geisla sína skína á þig alla daga líkt og hún gerir í dag:)
Amma Inga
At 19:00,
Nafnlaus said…
Innilega til hamingju með daginn litli kall, knús til mömmu þinnar og pabba.
Kveðja
Ester bolla
At 08:35,
Nafnlaus said…
Hæ litli maður og til hamingju með afmælið aftur;) Held svei mér þá að ég verði bara að koma með tvíbura sem þú getur leikið þér við, kallinn minn tekur sig svo vel út með tvö í fanginu...:)
Knús Erna Sif
At 23:44,
Nafnlaus said…
Hæ hæ,
Okkur langaði bara til þess að kasta á ykkur kveðju og óska prinsinum til hamingju með afmælið :-)
mbk
Baltasar Breki & Harpa Hödd
www.photspor.blogsome.com
At 22:05,
Nafnlaus said…
Til hamingju með afmælið kútur.
Betra seint en aldrei ;)
Rosalega ertu duglegur að standa.
kv, Magga, Jón Kristinn og Laufey Brá
Skrifa ummæli
<< Home