Ævintýri Úlfs

þriðjudagur, júní 12, 2007

Matgæðingur og göngugarpur

Jæja þá er litla hrakfallabálkinum okkar farið að líða betur, þrátt fyrir að hafa bætt smá marbletti við í safnið um daginn :)
Sunnudaginn 3. júní tók hann fyrstu tvö skrefin til afa Dolla og var voðalega kátur með sig. Úlfur lét samt lítið á bera þessum nýja hæfileka þangað til núna á sunnudaginn og tók þetta þá með trompi og tók 12 skref til mömmu sinnar! Eftir þetta getur lítið stöðvað hann og það skemmtilegast sem gert er þessa dagana er að labba á milli fólks og klappar hann óspart fyrir sjálfum sér.
Úlfur er líka farinn að fá að borða stundum sjálfur, svona þegar foreldrar hans nenna að standa í þrifum og smúli eftir matinn. Hérna kemur smá myndasyrpa af matgæðingnum. Setjum inn nýjar myndir af honum að labba bráðum.

Jæja kominn með skeiðina

Ertu alveg viss um að þú leyfir þetta mamma?

Umm...

Ha, er matur þarna líka

Miklu betra en skeiðin!

Jumm jumm

Geggjað stuð að borða sjálfur

-II-

Úje stuð stuð stuð

Ojj allt skítugt og drengurinn þarf smúlun

3 Comments:

  • At 15:32, Anonymous Nafnlaus said…

    Meirihátar myndir búið að uppfæra background myndina á desktopnum hehe! bestu kveðjur Afríku-Afi

     
  • At 10:53, Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert nú meiri grallarinn og matarkallinn. Ekki leiðinlegt að gefa þér að borða, en samt örugglega skemmtilegra fyrir þig að fá að kljást við þetta sjálfur. Vona að þú sért að ná þér eftir öll óhöppinn elsku kallinn minn.
    Amma fær vonandi að sjá þig aftur bráðlega.
    17. júní kveðja
    amma Inga

     
  • At 06:31, Anonymous Nafnlaus said…

    Góðar myndir... alveg frábærar!! :)Gaman að heyra að þér sé farið að líða betur.

     

Skrifa ummæli

<< Home